01-5T3A1877-1920w

Æskulýðsbikar LH í Skagafjörðinn 🏆

Hinn eftirsótti Æskulýðsbikar Landssambands hestamannafélaga var afhentur á formannafundi LH þann 8. nóv. sl. Bikarinn er árlega veittur því félagi sem þykir hafa skarað fram úr í æskulýðsstarfi á liðnu ári. Handhafi Æskulýðsbikars LH árið 2025 er: Hestamannafélagið Skagfirðingur í Skagafirði! 🎉

“Skagfirðingur hefur sýnt mikinn metnað, frumkvæði og elju í starfi sínu. Félagið stendur fyrir fjölmörgum viðburðum allan veturinn og fram á sumar, býður upp á getuskipt námskeið fyrir börn allt niður í tveggja ára aldur og leggur áherslu á að öll börn fái að blómstra – hvort sem þau eru nýliðar, áhugaknapar eða keppnisknapar. Félagið stendur fyrir glæsilegri æskulýðssýningu, þar sem ungir knapar fá að sýna sig og hestinn sinn, og halda uppskeruhátíð fyrir æsku félagsins. Þau eru einnig dugleg til fjáröflunar, því slíkt starf kostar bæði tíma, elju og útsjónarsemi. Félagstarf Skagfirðings einkennist af jákvæðni, samstöðu og sterkri framtíðarsýn.”

Engin nefnd innan íþróttafélaga er sterkari en fólkið sem í henni situr. Skagfirðingar eiga frábæra félagsmenn og fólkið í æskulýðsnefnd Skagfirðings er duglegt, óeigingjarnt og hefur verið tilbúið að leggja á sig ómælda vinnu við skipulag og framkvæmd á æskulýðsstarfinu í hestamannafélaginu okkar síðustu ár.

/ Eygló Gunnlaugsdóttir, formaður æskulýðsdeildar Skagfirðings og Unnur Rún Sigurpálsdóttir yfirreiðkennari Skagfirðings veittu bikarnum móttöku úr hendi formanns æskulýðsnefndar LH.

Sjá nánar á https://www.lh.is/skagfiringur-hlaut-skulysbikarinn

Deila færslu