485805673_1159682325946913_4837573878944013841_n

Skagfirðingur óskar eftir upplýsingum um árangur félagsmanna á íþróttamótum, gæðingamótum og skeiðgreinum á árinu 2025.

Veitt verða verðlaun fyrir framúrskarandi árangur á árinu 2025 í eftirfarandi flokkum:

*Knapi ársins í barnaflokki

*Knapi ársins í unglingaflokki

*Knapi ársins í ungmennaflokki

*Knapi ársins í áhugamannaflokki

*Íþróttaknapi ársins

*Gæðingaknapi ársins

*Skeiðknapi ársins

*Knapi ársins

Taka þarf fram; á hvaða móti árangurinn var og sæti í verðlaunaafhendingu/úrslitum.

Árangursupplýsingar skulu sendast á netfangið itrottamot@gmail.com fyrir 1.október. Athugið: Ef upplýsingar koma ekki fyrir tíma á þetta netfang kemur knapi ekki til greina í kjöri.

Deila færslu