Að gefnu tilefni vill stjórn Skagfirðings minna á að lausaganga hunda í hesthúsahverfinu á Sauðárkróki og á reiðvegum þar í kring er bönnuð. Mikið hefur verið kvartað undan lausagöngu hunda í hverfinu upp á síðkastið.
Hundar skulu ekki vera lausir í hesthúsahverfinu og næsta nágrenni sbr. samþykkt um hunda- og kattahald í Sveitafélaginu Skagafirði nr. 783/2010