Aðalfundur Skagfirðings var haldinn í Tjarnabæ þann 4.mars síðastliðinn. Kosið var í stjórn félagsins en Unnur Rún Sigurpálsdóttir og Þóranna Másdóttir gengu úr stjórn og var þeim þakkað fyrir frábært og óeigingjarnt starf í þágu félagsins.
Elvar Einarsson var kosinn formaður og ný inn í stjórn komu Freydís Þóra Bergsdóttir og Ívar Örn Guðjónsson. Kosnir voru tveir nýjir varamenn í stjórn og eru það Guðmundur Þór Elíasson og Sigurlína Erla Magnúsdóttir.
Framundan er stórt ár í Skagafirði og hlakkar okkur til að taka vel á móti öllum heima að Hólum á Landsmóti Hestamanna dagana 5-11.júlí.
Stjórn Skagfirðings:
Elvar Einarsson, formaður
Bjarni Jónasson, varaformaður
Stefanía Inga Sigurðardóttir gjaldkeri
Freydís Þóra Bergsdóttir
Ívar Örn Guðjónsson
Sigrlína Erla Magnúsdóttir, varamaður
Guðmundur Þór Elíasson, varamaður