Verið velkomin á WR Íþróttamót UMSS & Skagfirðings verður haldið helgina 21-24.maí. Skráning opnar 1.maí og lýkur fimmtudaginn 14. maí klukkan 20:00.
Endanlega dagskrá verður verður birt um leið og skráningu lýkur en hér fyrir neðan má sjá hvaða flokka verður boðið upp á.
Mótsstjóri er Ingunn Ingólfsdóttir
Dómarar eru:
G. Snorri Ólason yfirdómari
Ketill Björnsson
Elisabeth Jansen
Pia Andreasson (FEIF)
Gunnar Eyjólfsson
Við hvetjum til metnaðar við skráningu, markmiðið er að allir geti fundið flokk við hæfi þar sem þeir geta á jafnréttisgrundvelli keppt og sett sér ný markmið eftir því sem reynslan vex.
Rísi ágreiningur um flokkaskiptingu keppenda, hefur mótsstjórn úrskurðarvald. Mótanefnd áskilur sér rétt til að fella niður eða sameina flokka ef ekki næst næg þátttaka.
Hámarksfjöldi skiptist þannig:
Meistaraflokkur T1 – 20
Meistaraflokkur T2 – 20
Meistarflokkur V1 – 20
Meistaraflokkur F1 – 25
Meistaraflokkur – Gæðingaskeið PP1 – 20
Meistaraflokkur T3 – 15
Meistaraflokkur T4 – 15
Meistaraflokkur V2 – 15
Meistaraflokkur F2 – 15
Ungmennaflokkur T1 – 20
Ungmennaflokkur T2 – 20
Ungmennaflokkur V1 – 20
Ungmennaflokkur F1 – 20
Ungmennaflokkur – Gæðingaskeið – 15
1.flokkur T3 – 20
1.flokkur V2 – 25
1.flokkur F2 – 20
1.flokkur – Gæðingaskeið – 10
Við mælum því eindregið með að skrá tímanlega þegar skráning opnar v/ fjöldatakmarkana í þessa flokka.
Skráningargjöld eru:
8000 á meistaraflokk og ungmennaflokk.
7.000 á 1. og 2.flokk
6500 á unglingaflokk, barnaflokk og 3.flokk
8000 á Gæðingaskeið
Skeiðgreinar 5.000
