Screenshot 2019-11-24 at 21.58.00

Uppskeruhátíð Hrossaræktarsambands Skagfirðinga var haldin föstudaginn 22.nóvember í Ljósheimum. 

Alls voru 116 hross með skagfirskan uppruna fulldæmd í kynbótadómi á árinu og af þeim fóru 79 einstaklingar eða 68% í 8 eða hærra í aðaleinkunn. Það var því hörð samkeppnin um efstu sætin og eftirfarandi hross voru verðlaunuð sem einstaklingar.  Það eru eingöngu félagar í HSS sem geta hlotið verðlaun sem ræktendur.

Bergur Gunnarsson og Rósa María Vésteinsdóttir ræktendur Vöku frá Narfastöðum en hún var hæst dæmda hrossið í Skagafirði í ár

4 vetra hryssur                     

1. Álfamær frá Prestsbæ         B. 8,33  H. 8,41  A. 8,38  Ræktendur Inga og Ingar Jensen og Prestsbær ehf

2. För frá Kýrholti       B. 8,39  H. 7,96  A. 8,13  Ræktandi Steinþór Tryggvason

3. Kamma frá Sauðárkróki     B. 8,07  H. 8,01  A. 8,03  Ræktandi Sauðárkróks-Hestar      

4 vetra hestar                       

1. Grettir frá Hvalnesi B. 8,11  H. 7,93  A. 8,0   Ræktandi Hvalnesbúið ehf           

2. Kjalar frá Ytra-Vallholti      B. 8,09  H.7,71   A. 7,86  Ræktandi Vallholt ehf

5 vetra hryssur                     

1. Þrá frá Prestsbæ      B. 8,31 H. 8,76 A. 8,58 Ræktendur Inga og Ingar Jensen og Prestbær ehf

2. Fönn frá Hafsteinsstöðum  B. 8,03 H. 8,23 A. 8,15  Ræktendur Hildur Claessen og Skapti Steinbjörnsson

3. Lokbrá frá Hafsteinsstöðum B. 8,0 H. 8,17 A. 8,10 Ræktendur Hildur Claessen og Skapti Steinbjörnsson

5 vetra stóðhestar                            

1. Skutull frá Hafsteinsstöðum  B.7,96  H. 8,67 A.8,39 Ræktendur Hildur Claessen og Skapti Steinbjörnsson                  

2. Álmur frá Reykjavöllum     B. 8,43 H. 7,85 A. 8,08  Ræktandi Hanna Kristín Pétursdóttir

3. Berserkur frá Miðsitju         B. 8,17 H.7,72 A. 7,90  Ræktandi Miðsitja ehf         

6 vetra hryssur                     

1. Stjörnuspá frá Þúfum          B. 8,63 H. 8,47 A.8,53  Ræktendur Gísli Gíslason og Mette Mannseth

2. Rispa frá Hólum     B. 8,35 H.8,60 A. 8,50  Ræktandi Hólaskóli             

3. Eldkatla frá Sauðárkróki     B. 8,25 H. 8,21 A. 8,23  Ræktandi Guðmundur Sveinsson

6 vetra stóðhestar                            

1. Sólon frá Þúfum     B. 8,38 H. 8,71 A. 8,58 Ræktendur Gísli Gíslason og Mette Mannseth

2. Rjóður frá Hofi       B. 8,50 H. 8,45 A. 8,47  Ræktandi Lilja Sigurlína Pálmadóttir

3. Baron frá Bræðraá  B. 8,08 H.8,62 A. 8,40  Ræktandi Pétur Vopni Sigurðsson   

7 vetra og eldri hryssur       

1.Vaka frá Narfastöðum         B. 8,27 H. 8,98 A. 8,70 Ræktendur Rósa MaríaVésteinsd og Bergur Gunnarsson

2. Þökk frá Prestsbæ   B. 8,44 H. 8,76 A. 8,63  Ræktendur Sigríður Gunnarsd og Þórarinn Eymundsson

3. Skipting frá Prestsbæ          B. 8,29 H. 8,66 A. 8,51 Ræktendur Inga og Ingar Jensen og Prestbær ehf

7 vetra og eldri stóðhestar               

1. Haukdal frá Hafsteinsstöðum B.8,18 H. 8,94 A.8,64 Ræktendur Hildur Claessen og Skapti Steinbjörnsson      

2. Korgur frá Garði     B. 8,16 H.8,74 A. 8,51 Ræktandi Jón Sigurjónsson 

3. Óskar frá Breiðstöðum       B. 8,18 H. 8,62 A. 8,45 Ræktandi Guðrún Astrid Elvarsdóttir         

Hæst dæmda kynbótahross í Skagafirði 2019 er Vaka frá Narfastöðum og fær til varðveislu Sörlabikarinn sem er veittur því hrossi sem hæstan dóm hlýtur á kynbótasýningu á árinu og hefur skagfirskan uppruna og eiganda. Vaka hlaut í aðaleinkunn  8,70 (Hæfileikar 8,98   Bygging 8,27). Hún er undan Heklu frá Hofsstaðaseli og Vita frá Kagaðarhóli. Eigendur og ræktendur Rósa María Vésteinsdóttir og Bergur Gunnarsson, Narfastöðum.

Kynbótaknapi ársins í Skagafirði 2019 er Þórarinn Eymundsson og fær hann Kraftsbikarinn til varðveislu. Þennan bikar hlýtur sá skagfirski knapi sem nær bestum árangri á kynbótasýningum á árinu. Hrossin þurfa að ná að lágmarki 8,0 í hæfileikaeinunn eftir aldursleiðréttingu til að telja til stiga. Bikarinn er gefinn af Eymundi Þórarinssyni, Saurbæ. 

1. sæti Þórarinn Eymundsson, Sauðárkróki 18 stig

2. sæti Bjarni Jónasson, Narfastöðum 17 stig

3. sæti Mette Mannseth, Þúfum  8 stig

4. sæti Gísli Gíslason, Þúfum  7 stig

 Hrossaræktarbú ársins í Skagafirði 2019 er Þúfur og fékk afhendann Ófeigsbikarinn sem gefinn er af Ófeigsfélaginu. Þau bú sem hafa unnið titilinn „Hrossaræktarbú Skagafjarðar“ áður þurfa að byggja stigin á nýjum hrossum til þess að geta hlotið titilinn aftur eins og Þúfur hafa gert en þau unnu þennan titil árið 2016. Valið byggir bæði á árangri kynbótahrossa og keppnishrossa hjá búinu.

1. sæti  Þúfur,  Gísli Gíslason og Mette Mannseth – 7 stig

2-3. sæti Hafsteinsstaðir, Hildur Claessen og Skapti Steinbjörnsson – 6 stig

2-3. sæti Prestsbær, Inga og Ingar Jensen  – 6 stig

Deila færslu