Sameiginleg úrtaka hestamannafélaganna Skagfirðings, Neista, Þyts
og Glæsis verður haldin á Hólum 11.júní og 12.júní nk.

Keppt verður í A-flokki og B-flokki gæðinga, barna,- unglinga,- og
ungmennaflokki. Tölti T1, 100 metra skeiði,150 metra skeiði og 250
metra skeiði.

Boðið verður upp á tvöfalda umferð í öllum flokkum nema tölti

Ef skráning er góð er möguleiki að fyrri tveir skeiðsprettirnir í básaskeiðinu fara fram 
föstudagskvöldið 10.júní og seinni tveir á sunnudaginn 12.júní.

Skráning fer fram á http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add
Skráningu lýkur þriðjudaginn 7. júní kl 23:59

ATH! Ekki verður tekið við skráningum eftir að skráningafrestur rennur út.

Skráning telst ekki gild fyrr en kvittum hefur borist á netfangið iþrottamot@gmail.com með skýringu fyrir hvern greitt er.

Nánari upplýsingar berast á
https://skagfirdingur.is/
þegar nær dregur

Íþrótta og mótanefnd Skagfirðings

Deila færslu