312232680_10220533837071595_6531570506736731815_n

Uppskeruhátíð æskulýðsdeildar Skagfirðings 14.október 2022

Allir iðkendur sem mættu fengu medalíur ásamt því að pollarnir okkar tóku við verðlaunum fyrir keppnisárið.

Iðkendur í helgarstarfi og keppendur í pollaflokki.
Iðkendur í vikustarfinu og keppendur í barnaflokki.

Í barnaflokki voru tilnefnd Hjördís Halla Þórarinsdóttir, Sveinn Jónsson og Súsanna Guðlaug Halldórsdóttir. Hjördís Halla Þórarinsdóttir var útnefnd sem knapi ársins í barnaflokki 2022 en hún keppti á hestinum sínum Flipa frá Bergsstöðum í sumar með frábærum árangri en þau riðu B-úrslit í barnaflokki á Landsmóti, urðu í 2.sæti í fjórgangi og Íslandsmeistarar í tölti! Ásamt því kom hún efst inn af Skagfirðingum á Landsmót í sínum flokki og hlaut 8,79 á félagsmóti. Súsanna Guðlaug Halldórsdóttir keppti á Ronju frá Ríp 3 en þær komstu í milliriðil á Landsmóti og hlutu 8,41 í úrtöku félagsins á þeirra fyrsta keppnisári saman! Sveinn Jónsson var með hestinn sinn Takt frá Bakkagerði í keppni í sumar og enduðu þeir rétt utan við milliriðil.

Sveinn Jónsson, Súsanna Guðlaug og Hjördís Halla.

Í unglingaflokki voru tilnefnd Kristinn Örn Guðmundsson, Fjóla Indíana Sólbergsdóttir og Þórgunnur Þórarinsdóttir. Þórgunnur Þórarinsdóttir var útnefnd sem knapi ársins í unglingaflokki en hún átti frábært sumar með ýmis hross en fyrst má nefna Hnjúk frá Saurbæ þar sem þau riðu sig í milliriðil á Landsmóti og urðu tvöfaldir Íslandsmeistarar í tölti og fimi. Einnig varð hún í öðru sæti í flugskeiði og fimmta sæti í gæðingaskeiði með Gullbrá frá Lóni á Íslandsmóti. Kristinn Örn Guðmundsson keppti á Vígablesa frá Djúpadal á Landsmóti og Fjóla Indíana Sólbergsdóttir keppti á Tínu frá Hofi á Höfðaströnd í unglingaflokki og áttu þær glæsisýningu á Landsmóti og hlutu þar 8,49 í einkunn og sæti í milliriðli.

Jóhanna Heiða (tekur við verlaunum fyrir Kristinn Örn), Fjóla Indíana og Þórgunnur Þórarinsdóttir.

Glæstilegir knapar sem eiga framtíðina fyrir sér !

Við hlökkum til að fylgjast með þeim áfram og erum afar stolt að geta kallað þau „krakkana okkar“ !

Iðkendur í reiðskólanum á Varmalæk

Deila færslu