247376236_1575291802823619_5808993869631191211_n-1

Skagfirðingur óskar eftir upplýsingum um árangur félagsmanna á íþróttamótum, gæðingamótum og skeiðgreinum á árinu 2023.

Veitt verða verðlaun fyrir framúrskarandi árangur á árinu 2023 í eftirfarandi flokkum:

*Knapi ársins í barnaflokki

*Knapi ársins í unglingaflokki

*Knapi ársins í ungmennaflokki

*Knapi ársins í áhugamannaflokki

*Íþróttaknapi ársins

*Gæðingaknapi ársins

*Skeiðknapi ársins

*Knapi ársins

Árangursupplýsingar skulu sendast á netfangið itrottamot@gmail.com fyrir 1.október. Athugið: Ef upplýsingar koma ekki fyrir tíma á þetta netfang kemur knapi ekki til greina í kjöri.

Deila færslu