Screenshot 2024-02-15 at 20.27.52

Á heimasíðu LH er góð samantekt fyrir þá sem ætla að taka þátt í mótum í sumar https://www.lhhestar.is/…/felagsadild-og-thatttaka-i-motum

Vakin er athygli á því að einungis þeir sem eru skráðir í Hestamananfélagið Skagfirðing við starfsskýrsluskil þann 15. apríl geta öðlast þátttökurétt á Landsmóti í sumar.

Keppandi getur aðeins tekið þátt í mótum í nafni eins félags á einu keppnistímabili. Þ.e.a.s. keppandi getur bara keppt fyrir eitt félag á árinu.

____________________________________

Í A- og B- flokki gæðinga í gæðingakeppni telst hesturinn sem keppandi á mótinu en ekki knapi hans. Það þýðir að eigandi hestsins þarf að vera skráður í það hestamannafélag sem hesturinn keppir fyrir og má ekki keppa fyrir annað félag á því keppnisári.

Í yngri flokkum gæðingakeppni er það knapinn sem keppir til móts við hestinn og því þarf knapinn að vera félagi í viðkomandi hestamannafélagi ásamt því að hesturinn er í eigu félagsmanns að hluta til eða öllu leyti.

Í íþróttakeppni er það knapinn sem er keppandi og þarf að vera skráður í félagið sem hann keppir fyrir, og eignarhald hestsins er ekki ráðandi þáttur þar.

Það er mikilvægt nú í upphafi keppnistímabils að knapar velji hvaða félag þeir keppa fyrir á árinu, og passa að skráningar á mót og deildir vetrarins séu réttar með það í huga að knapinn keppi einungis fyrir eitt félag yfir keppnisárið.

Deildirnar allar líkt og Meistaradeildin, Meistaradeild KS og æskulýðsdeildirnar meðal annars, sem eru í gangi yfir veturinn eru íþróttamót og hestur getur tekið þátt þar alveg óhindrað og farið í gæðingamót hjá sínu félagi en knapi þarf að vera rétt skráður í Sportfeng og keppa fyrir sitt félag.

Deila færslu