279402890_10221338315193300_1550440326951114825_n

Skráning er hafin í úrtöku Skagfirðings í A- og B-flokki sem fer fram á Sauðárkróki 1.-2.júní. Riðnar verða tvær umferðir og engin úrslit verða.

Skráningar í Sportfeng:

🌿 Fyrri umferð – Úrtaka Skagfirðings A- og B-flokkur
Skráningu lýkur á miðnætti miðvikudaginn 29. maí.

🌿 Seinni umferð – Úrtaka Skagfirðings A- og B-flokkur
Skráningu lýkur klukkan 22:00 laugardaginn 1.júní

Inn á Landsmót gildir betri árangur hests úr báðum umferðum. Athugið að þátttakendum er heimilt að taka þátt í hvorri umferð sem er eða báðum.

Skagfirðingur hefur heimild til að senda 5 efstu þátttakendurna í gæðingaflokkum á Landsmót.

Deila færslu