Kæru þáttakendur Skagfirðings. 

Endilega skoðið þennan póst með hesthúspláss á FM2017 í Borgarnesi. 

Ef þið þurfið hesthúsapláss vinsamlegast látið vita í síðasta lagi sunnudaginn 18.júní nk. kl 21:00 hjá Rósu narfastadir@simnet.is 

Það hefur komið í ljós að einhver hluti keppenda á væntanlegu fjórðungsmóti Vesturlands hefur nú þegar útvegað sér hesthúspláss í Borgarnesi eða nágrenni.

Vegna þess er hér með óskað eftir því að forsvarsmenn félaga komi á framfæri beiðnum um hesthúspláss fyrir þá félagsmenn sem þess þurfa í síðasta lagi á miðnætti sunnudaginn 18/6 nk.  þ.e. þegar skráningarfresti lýkur.  Forsvarsmenn félaganna þurfa því að athuga hvaða keppendur frá þeim kann að vanta hesthúspláss.  Framkvæmdanefnd mun þá liðsinna viðkomandi varðandi hesthúspláss í Borgarnesi eða nágrenni eftir því sem hægt verður.

Þeir sem ekki verður búið að óska eftir hesthúsplássi fyrir í síðasta lagi 18/6 nk. geta ekki vænst þess að fá aðstoð við útvegun á plássi.  Að gefnu tilefni skal það tekið fram að það verður aðeins útvegað hesthúspláss fyrir hross sem keppa á mótinu eða verða sýnd þar.

Hestar sem keppa t.d. í forkeppni á miðviku- eða fimmtudegi en komast ekki í úrslit þurfa að fara úr hesthúsum í Borgarnesi hafi þeir verið þar.  Þetta er nauðsynlegt til að rýma fyrir hrossum sem koma síðar á mótið.  Þess er því vænst að þessi hross fari til síns heima eða út fyrir Borgarnes og er það á ábyrgð umráðamanna þeirra að útvega pláss fyrir þau þegar hrossin hafa lokið keppni.

Það skal tekið fram að miðað er við að keppendur úr Mýra- og Borgarfjarðarsýslum (fyrir utan þá sem eiga hesthús í Borgarnesi) muni ekki þurfa á hesthúsplássi að halda nema í undantekningartilfellum.

f.h. framkvæmdanefndar

Ingi Tryggvason formaður
s.  860 2181

Deila færslu