17-hestur-ad-vetri.jpg

Árleg fundarferð um málefni hestamannaAlmennir fundir í fundarröð Félags hrossabænda og Fagráðs í hrossarækt um málefni hestamanna hefjast fljótlega. Helstu málefni sem tekin verða fyrir á fundunum eru m.a. eftirfarandi:
Félagskerfi Félags hrossabænda.

Markaðsmál.

Þróun ræktunarmarkmiðs í hrossarækt og dómskala.

Nýjungar í skýrsluhaldinu.

Nýjungar í kynbótadómum.

Eins og sjá má verður margt áhugavert á döfinni.

Með fulltrúum Félags hrossabænda og fagráðs, þeim Sveini Steinarssyni formanni Félags hrossabænda og fagráðs og Þorvaldi Kristjánssyni, ábyrgðarmanni í hrossarækt verður fulltrúi Landssambands Hestamannafélaga og munu þau verða frummælendur fundanna.
Fundirnir verða haldnir um allt land en þeir verða haldnir á eftirfarandi stöðum:

1. mars miðvikudagur – V-Húnavatnssýsla – Gauksmýri kl. 20:30.

2. mars fimmtudagur – Eyjafjörður – Reiðhöllin á Akureyri kl. 20:00.

3. mars föstudagur – Skagafjörður – Tjarnarbær/reiðhöllin kl. 20:00.

9. mars fimmtudagur – Vesturland – Hvanneyri kl. 20:30.

10. mars föstudagur – Egilsstaðir – Kaffi Egilsstaðir kl. 20:00.

11. mars laugardagur – Höfn í Hornafirði – Fornustekkar kl. 11:30 til 13:00. Folaldasýning í framhaldinu.

15. mars miðvikudagur – Suðurland – Hliðskjálf á Selfossi kl. 20:00.
Hvetjum hestamenn og hrossaræktendur til að fjölmenna á fundina og nýta tækifærið til að kynna sér verkefnin og leggja sitt til málanna.

17 hestur ad vetri

Deila færslu