feif-logo-blue.jpg

feif logo blueFEIF Youth Camp sumarbúðirnar verða haldnar dagana 11. – 18. júlí 2017 í St-Truiden í Belgíu. Þetta eru sumarbúðir fyrir hestakrakka á aldrinum 14-17 ára á árinu og markmið þeirra er að kynna krakka frá aðildarlöndum FEIF fyrir (hesta)menningu annara þjóða og að hitta ungt fólk með sama áhugamál.

Þema FEIF Youth Camp í ár er „hestur og vagn“.

Belgíska Íslandshestasambandið er það minnsta innan FEIF og það eru sjálfboðaliðar í æskulýðsstarfinu þar sem skipuleggja viðburðinn. Það sem verður meðal annars á dagskrá:

  • Heimsókn á bú þar sem ræktaðir eru Brabant hestar
  • Sýnikennsla/kynning á vinnu með dráttarhesta
  • Sýnikennsla/kennsla á jafnvægi knapa og ásetu (centered riding)
  • Fræðsla um tannheilsu hesta
  • Vinna með hest í tvítaum
  • Sögufræg borg heimsótt
  • Skemmtigarður heimsóttur – Bobbejaanland
  • Ferð í hestvagni
  • Og margt fleira….!

Umsóknarfrestur um að fara út fyrir Íslands hönd er til 3. apríl 2017 og skulu umsóknirnar berast á netfangið hilda@lhhestar.is  fyrir þann tíma.
Umsóknareyðublað er að finna á vef LH, www.lhhestar.is  undir „Æskan“. Þar er að finna bæði pdf og Excel skrá. Einnig hægt að nálgast umsóknina með því að smella hér.
Kostnaður við búðirnar er €680 (ca. 78.000 í dag), en inní því er fæði, uppihald og allar ferðir og afþreying í Belgíu. Flug út til Brussel, vasapeningur og annað er ekki innifalið.
Skrifstofa LH veitir allar nánari upplýsingar í síma 514 4030 eða í gegnum netfangið hilda@lhhestar.is 

Deila færslu