Eins og ykkur er kunnugt verður Fjórðungsmót Vesturlands haldið í Borgarnesi 28. júní til 2. júlí 2017. Framkvæmdaaðilar mótsins eru hestamannafélögin fimm á Vesturlandi en auk þeirra eiga keppnisrétt á mótinu félagsmenn í hestamannafélögunum á Vestfjörðum, í Húnavatnssýslum og í Skagafirði.

Keppt verður í hefðbundnum greinum gæðingakeppninnar þ.e. A og B-flokki gæðinga, ungmennaflokki, unglingaflokki og barnaflokki. Miðað er við að bak við hvern keppenda séu 50 félagar í viðkomandi félagi. Þannig að félag með t.d. 151 félaga má senda 4 keppendur. Miðað er við fjölda félaga 15. apríl 2017. Hvert félag má síðan skrá tvo varahesta í hvern flokk.

Þá verður tölt opinn flokkur og tölt 17 ára og yngri. Þá er stefnt að keppni í 100 m fljúgandi skeiði, 150 og 250 m skeiði. Vegleg verðlaun verða fyrir fyrsta sætið í tölti og 100 m skeiði.

Þegar kemur að skráningum verða þær í gegnum SportFeng en nánar verður tilkynnt um fyrirkomulagið hvað það varðar síðar. Miðað er við að félögin sjálf skrái alla sína keppendur í gæðingakeppni en ekki keppendurnir sjálfir og félögin greiði skráningargjöldin sömuleiðis fyrir alla sína keppendur. Frestur til skráningar og greiðslu skráningargjalda verður tilkynntur síðar. Skráningargjald í hringvallargreinum verður 5.000 á hest, í tölti 7.000 en í skeiðgreinum 3.500.

Keppendur skrá sig sjálfir í tölt opinn flokk, tölt 17 ára og yngri og skeiðgreinar.

Sýning á kynbótahrossum verður í umsjá RML en fjöldi þeirra verður þessi:

Stóðhestar 4 v., 5 v. og 6 v. verða 8 í hverjum flokki en 6 í flokki 7 v. og eldri eða samtals 30 stóðhestar.

Hryssur 4 v. verða 8, 5 v. verða 14, 6 v. verða 10 og 7 v. og eldri verða 6 eða samtals 38.

Samtals munu því 68 kynbótahross eiga rétt til að mæta á fjórðungsmótið.

Miðað er við að kynbótahross verði að lágmarki að vera í 25% eigu aðila sem á lögheimili á svæði þeirra hestamannafélaga sem eiga keppnisrétt á mótinu (Vesturland, Vestfirðir, Húnavatnssýslu og Skagafjörður).

Þess skal getið að nú er verið að endurbyggja gömlu kynbótabrautina í Borgarnesi en margir hafa talað um að hún hafi á sínum tíma verið ein sú besta á landinu. Stefnt er að því að prufukeyra hana á kynbótasýningu í byrjun júní.

Stefnt er að því að sem flestir geti fengið pláss fyrir sín hross í hesthúsum í Borgarnesi en einhverjir geta þurft að vera í næsta nágrenni. Þó verður mikilvægt að þau hross sem lokið hafa keppni fari strax að lokinni keppni frá Borgarnesi þannig að rými verði fyrir þá sem eftir eiga að keppa. Tekið skal fram að stefnt er að því að hvert félag sem eigi keppnisrétt á fjórðungsmótinu fái ákveðin hesthús til umráða og það verði síðan þeirra að ákveða um nýtingu á viðkomandi húsi/húsum þannig að einstakir keppendur eiga ekki sjálfir að útvega sér hesthúspláss í Borgarnesi. Nánar verður tilkynnt um fyrirkomulag hvað þetta varðar síðar.

Vekja má athygli á því að aðgangseyri verður mjög í hóf stillt eða 2.500 kr. og síðan getur hver og einn ákveðið hvað hann verður lengi á mótinu t.d. einn dag eða allt mótið. Tjaldstæði með rafmagni verða á Kárastaðatúni (milli þéttbýlisins í Borgarnesi og mótssvæðisins). Selt verður sérstaklega inn á tjaldstæðið og fyrir afnot af rafmagni.

Framkvæmdastjóri fjórðungsmótsins er Ámundi Sigurðsson (amundi@isl.is og s 892 5678) og mótsstjóri verður Ingi Tryggvason (ingi@lit.is og s 860 2181).

Væri gott ef þið ágætu formenn myndu kynnu helstu atriði varðandi fjórðungsmótið fyrir ykkar félagsmönnum.

Ef eitthvað er óljóst skulu þið ekki hika við að hafa samband við mig eða Ámunda Sigurðsson.

Með von um heiðarlega keppni á komandi móti og megi það verða ánægjulegt bæði fyrir keppendur og gesti.

Kær kveðja

f.h. framkvæmdanefndar Fjórðungsmóts Vesturlands 2017

Ingi Tryggvason formaður

s. 860 2181

Deila færslu