Ótrúlegur árangur Skagfirðings-félaga í A-flokki.
Ljóst er að hestamannafélagið Skagfirðingur mun eiga 12 hesta í A-flokki á Landsmóti á Hólum
eftir nýútkominn stöðulista.

Sex hestar komust beint inn og aðrir sex af stöðulistanum.
Auk þess komst Sina Scholz inn í B-flokk af stöðulista.
…Glæsilegur árangur hjá hinu nýja hestamannafélagi!

Á síðasta Landsþingi var samþykkt að 6 efstu hestar af stöðulistum kæmu inn í gæðingakeppnina, til viðbótar þeim hestum sem koma inn í gegnum úrtökur félaganna.
Hér eru þau hross sem koma inn á A og B flokk af stöðulistum.

Þetta eru eftirfarandi hross:

A flokkur gæðinga:

1. Seiður frá Flugumýri II, Sigurður Rúnar Pálsson. Skagfirðingur. Hlutu 8,55 í úrtöku Skagfirðings

2. Dynur frá Dalsmynni, Bjarni Jónasson. Skagfirðingur. Hlutu 8,54 í úrtöku Skagfirðings

3. Hlekkur frá Saurbæ, Pétur Örn Sveinsson. Skagfirðingur. Hlutu 8,53 í úrtöku Skagfirðings

4. Stígandi frá Neðra-Ási, Elvar Einarsson. Skagfirðingur, hlutu 8,53 í úrtöku Skagfirðings

5-8. Þeyr frá Prestsbæ, Julian Veith, Skagfirðingur, hlutu 8,50 í úrtöku Skagfirðings

5-8. Stáss frá Ytra-Dalsgerði, Ævar Örn Guðjónsson, Sprettur, hlutu 8,50 í úrtöku Spretts

5-8. Gáll frá Dalbæ, Sólon Morthens, Logi, hlutu 8,50 í úrtöku Geysis, Loga, Smár og Trausta

5-8. Snillingur frá Íbishóli, Magnús Bragi Magnússon, Skagfirðingur, hlutu 8,50 í úrtöku Skagfirðings

B flokkur gæðinga:

1. Katla frá Ketilstöðum, Bergur Jónsson, Freyfaxi. Hlutu 8,75 á úrtökumóti hjá Sleipni

2. Óskar frá Hafragili, Klara Sveinbjörnsdóttir, Faxi, hlutu 8,54 á úrtökumóti á Vesturlandi

3. Snjólfur frá Eskiholti, Þórdís Fjeldsteð, Faxi, hlutu 8,53 á úrtökumóti á Vesturlandi

4. Hemra frá Flagveltu, Sigurður V Matthíasson, Máni, hlutu 8,53 í úrtöku hjá Mána

5. Ólína frá Skeiðvöllum, Sólon Morthens, Geysir, hlutu 8,49 í úrtöku hjá Geysi

6. Nói frá Saurbæ, Sina Scholz, Skagfirðingur, hlutu 8,48 í úrtöku Skagfirðings.

Deila færslu