download.jpg

download 
Á Hólum verður boðið upp á keppni í hindrunarstökki.
Til að vekja áhuga á greininni er boðið upp á einfalda og
skemmtilega hindrunarbraut sem er sérhönnuð fyrir mótið að þessu sinni
og hugsuð sem kynning á hindrunarstökki. Við vonum að sem flestir skrái
sig og taki þátt í þessari skemmtilegu grein.


Hindrunarstökk er góð leið til að bæta jafnvægi hests og knapa og eykur
næmni knapans fyrir ábendingum og svörun hestsins við þeim.
Sé vel að verki staðið hafa bæði hestar og knapar gaman af því
að stökkva yfir hindranir og hindrunarstökk bætir einnig kjark og leikni.
Mikilvægt er að knapar muni eftir að hafa gaman af og leyfi sér
að njóta sem flestra hliða hestamennskunnar.

Verkefnislýsing, skýringamynd af brautinni og reglur verða birt á facebook síðu mótsins Íslandsmót yngri flokka í hestaíþróttum) og á heimasíðu Skagfirðings www.skagfirdingur.is 

Deila færslu