fluga174.jpg

fluga174


Verðskrá á kortum

· 10 daga opið kort = 6.000kr

· 1 mánuður = 8.000kr

· 3 mánuðir = 20.000kr

· Árskort = 50.000kr

· 1 dagur = 1.000 kr

Lykillinn kostar 1000 kr

Upplýsingar í síma 8684184 Viðar Ágústsson

Handhafar árs- og mánaðarkorta hafa ótakmarkaðan aðgang að höllinni þegar hún er ekki í annarri skipulagðri notkun t.d. námskeið og sýningar.
Miðað er við að höllin geti verið í notkun frá kl. 08:00 til 22:00.

  • Látið vita áður en teymt er inn á völlinn. Farið á bak og af baki inn á miðjum velli en ekki á reiðleiðum í útjaðri vallar.
  • Fetgangur skal riðinn á innri sporaslóð þegar aðrir knapar ríða á hraðari gangtegund á ytri sporaslóð. Þeir sem ríða hægari gangtegund skulu ávallt víkja fyrir þeim er hraðar fara.
  • Hægri umferð gildir þegar knapar mætast úr gagnstæðri átt ef riðinn er sami hraði. Undantekning frá því er ef annar knapi ríður hraðar skal honum eftirlátin ytri sporaslóð.
  • Knapi sem ríður bauga, á hringnum, eða aðrar reiðleiðir inni á velli veitir þeim forgang sem ríða allan völlinn á sporaslóð.
  • Ekki má stöðva hestinn á ystu sporaslóð. Ef stöðva þarf er best að gera slíkt inni á miðjum velli nema um annað sé samkomulag þeirra í milli er stunda æfingar á vellinum hverju sinni.
  • Forðast skal að ríða þvert í veg fyrir aðra knapa.
  • Fylgja ber hefðbundnum reiðleiðum á vellinum.
  • Ekki má hafa lausa hesta á vellinum meðan á reiðþjálfun stendur né binda hesta þar.
  • Knapar skulu sýna kurteisi og tillitssemi og forðast óróa eða hávaða.
  • Öll þjálfun á völlum sem félagið leggur félagsmönnum til er á eigin ábyrgð.
  • Þeir sem keypt hafa einkatíma í höllinni hafa hana einir til umráða.
  • Notendur hallarinnar skulu ganga snyrtilega um m.a. þrífa upp hestaskít eftir sína hesta og annað rusl. Verði notendur uppvísir að slæmri umgengni er stjórn hallarinnar heimilt að banna þeim afnot af höllinni. Séu þeir búnir að greiða fyrir afnot af höllinni fram í tímann fá þeir það ekki endurgreitt.
  • Bæði notendur hallarinnar og gestir eru ávallt í höllinni á eigin ábyrgð.
  • Notendur hallarinnar skulu sýna hver öðrum tillitssemi og vera öðrum til fyrirmyndar í hvívetna
  • Stjórn hallarinnar hefur ávallt heimild til að taka höllina undir sýningar eða aðra starfsemi og verða þá almennir notendur að víkja.
  • Athugið að hjálmaskylda er í reiðhöllinni.

Deila færslu